Loksins, loksins!! Þetta er búin að vera klikkuð rússíbanaferð, ég er flutt að heiman, flogin úr hreiðrinu, gone for good, dísös hvað þetta er skrítið!!
Ég fékk sem sagt loksins netið áðan, eftir að netgúrúinn Simon sem býr á efri hæðinni var nánast búinn að henda öllu út úr tölvunni minni og rugla í henni í tvo tíma, sjiiii, ég hvítnaði hressilega í framan þegar hann spurði hvort það væri eitthvað mikilvægt í tölvunni!! En þetta reddaðist allt fyrir rest eftir nokkrar símhringingar eftir passwordum heima á Íslandi 
En já, svo ég reyni nú að byrja á byrjun....
Ég og mamma komum hingað síðasta föstudag. Line, mentorinn minn hérna í Århus tók á móti okkur og lét mig hafa lyklana að íbúðinni og hef ég ekki talað við hana síðan, hehe. Ég hélt einhvern veginn að svona mentorar ættu að tjekka á manni og reyna að tala við mann og gera eitthvað með manni. Ekki að ég sé neinn venjulegur skiptinemi, með mömmu með mér sem er sko tough cookie og hefur sjálf búið í DK áður og ég talandi á dönsku og svona. Greyið stelpan er með 5 aðra skiptinema frá Austur-Evrópu og í einu tilfellinu hafði selpa frá Litháen hringt í hana frá Köben og spurt hvort Line gæti ekki reddað sér til Århus, úppps.
En já, ég og mamma komum hingað upp úr kvöldmatarleyti síðasta föstudag og tókum taxa af Hovebanegården í íbúðina. Það fyrsta sem blasti við var stórt hús. Jebb, ég segi og skrifa, stórt þriggja hæða einbýlishús úr rauðum múrsteinum með dúlló skorstein en það hálfpartinn sást ekki fyrir trjám og gróðri. Hmm, pínu spes....svo reyndi ég að opna aðaldyrnar og nei, þær vildu ekki opnast þannig að ég fór inn um næstu dyr sem voru dyrnar að kjallaranum...það var svolítið sérstakt því það var frekar lágt til lofts en ok, ég fann síðan herbergið mitt og það var bara alveg ágætis herbergi. Nýmálað og með nýju parketi úr ljósri eik og svona. Svo voru það þessi ágætu húsgögn sem áttu að fylgja, inni í herberginu var eitt einfalt boxrúm, skrifborð og skökk, lítil, Ikeahilla sem hefur eflaust fengist á góðum afslætti því hún er alveg sko rammskökk. Ekki fataskápur né neitt annað. Kræst! Svo kom eldhúsið og bjakkalakki!! Það var ógeðslega skítugt, ég fékk vægt áfall og ég er að segja það, ég hefði eflaust farið að skæla hefði mamma ekki verið með mér!! En hún sagði bara ákveðið að við skyldum ekki stressa okkur heldur myndum við bara þrífa þetta og fara í Ikea!!
Daginn eftir fórum við í Ikea og eyddum slatta í nýja stílinn og eftir 5 daga "fríið" hennar mömmu er ég ótrúlega ánægð í kósí herberginu mínu með ljósu og brúnu þema
svo tókum við baðherbergið og sótthreinsuðum, kalkhreinsuðum og á tímabili vorum við komnar með hnífa og skrúfjárn ofan í klósetti svo svakalegt var þetta!!
en ég er ekki ennþá alveg búin að tækla eldhúsið en þannig er mál með vexti að það búa sex manns í þessu húsi, tveir á hverri hæð með sameiginlegt bað og eldhús og strákurinn sem býr á minni hæð er vægast sagt spes og greinilega ekki mikið fyrir að þrífa. Hann greyið vissi ekki að það væri von á neinum í húsið á næstunnni og var því búinn að dreifa sínum skít út um allt! Hahaha, ég er núna búin að ræða mögulegt "cleaning system" við hann og ætla að útbúa eitthvað gott skema sem hann getur fylgt, því svona gengur þetta EKKI!! Ein geðveikt leiðinleg, haha
en eldhúsið uppi er nebbla geðveikt fínt og strákarnir sem búa þar hafa sagt að ég megi nota það að vild þar til ég fíli mig niðri, hehe, þeir þekkja Steven vel og vita víst hvernig hann getur verið greyið! en já, ég bý sem sagt í þessu húsi með 5 Dönum, 4 strákum sem eru allir vinnandi menn og svo einni stelpu sem er nemi í félagsfræði. Þannig að ég er bara alls ekki á kollegíi, ég er bara í húsi þar sem fólk býr bara að staðaldri, spes 
Svo er ég búin að kaupa mér flottasta og dýrasta hjól sem ég hef nokkurn tímann átt. Það er rosa flott, 7 gíra stelpuhjól, hvítt með körfu og bögglabera og bremsum í pedölunum, haha, mjög fyndið en það er ótrúlega þægilegt að hjóla á því
þannig að núna er ég bara búin að vera að hjóla út um allt, ég fékk hjólið sama dag og mamma fór þannig að eftir að ég varð svona rosalega lónlí hef ég ekkert betra að gera
æi, váá, þetta er kannski ekkert sérstaklega spennandi frásögn enda ekki margt frásögufærandi sem mér dettur í hug akkúrat núna, ég hef bara verið að koma mér fyrir og kanna aðstæður. Það var notla hræðilegt þegar mamma fór og ég fór að sjálfsögðu að skæla á brautarpallinum þegar lestinn fór en það sem ekki drepur mann ekki, herðir mann
Á morgun koma svo Halla og Ragna og þá breytist allt og svo byrjar skólinn á þriðjudag þannig að þá fer maður að kynnast fólki og spjalla meira, ég hef reyndar aðeins talað við Simon og Steven sem búa hérna í húsinu, mjög spes gaurar, vægast sagt en þeir eru almennilegir og vingjarnlegir þannig að það er bara fínasta fínt. Fór meira að segja í göngutúr áðan með Simon niður í bæ að skoða Festeugen aðeins sem er músíkfestival sem er að byrja núna í kvöld. Það var nú ekkert brjálað í bænum enda klukkan kannski ekki margt. Núna er ég bara komin heim að hygge mig og ætla að fara að horfa á eitthvað skemmtó í tölvunnu minni 
Hej, hej 